Jæja gæs...
Það eru nú margir komnir á þrítugsaldurinn í bekknum okkar-þó bara janúar mánuður liðinn á þessu nýja ári. það er greinlegt að meirihlutinn á afmæli fyrripart ársins. Hvað segir það okkur? Jújú-foredrarnir hafa verið mjög ástfangin frá svona páskum-verslunarmannahelgarinnar og búið til mörg lítil baby árið 1988.
Mér fannst rétt að óska þessum einstaklingum til hamingju aftur og setja að sjálfsögðu inn myndir af þeim!
Fyrst var það hann Böðvar þann 10.jan.
hann hefur gaman af löngum gönguferðum á ströndinni og að henda fólki út.
Svo var það okkar eigin Siggi-Dj El Nino sem fékk þann heiður að eiga afmæli næst, þann 12. janúar
Aukastarf hans er "The Grinch". Hann hefur gaman að því að taka fólk í lífsaugað...og það er ekki e-ð dónalegt!
21. janúar gekk í garð og hún Margrét Anna-rjómabolla með meiru náði öðrum tuginum
Margréti finnst gaman að hlæja og spjalla um veðrið
Þann 27. janúar varð svo Sandra okkar-heimspekingur tuttugu ára gömul. Söndru finnst fátt skemmtilegra en að eltast við litla stráka og lesa yfir þeim lífsreglurnar.
Björg, litli Kínverji ákvað svo að slást í hóp með fyrrnefndu fólki og átti afmæli þann 29. janúar. Björg finnst gaman að þykjast vera Austin Powers og nær í margar gellur sem hinn ómótstæðilegi Mr. Powers.
Hérna eru þær stöllur, brúnar á sætar á Rhodos. Þið verðið að afsaka-en ég fann bara ekki aðra mynd. (tekin af myspeisinu hennar ArnrúnarT)
Hann Víðir-bissnessmaðurinn okkar varð tvítugur þann 22. jan. Honum finnst gaman að slá köttinn úr tunnunni.
Viddi gamli
Síðan fylgdi hún Ella Tóta. En hún varð gömul þann 1. febrúar. Hún hefur gaman að því að dressa sig upp í grímubúninga og fara að syngja í búðum.
Sæta Ella...
Til hamingju aftur fólk!!
Er svo ekki kominn tími á bekkjarhitting?? Svona þar sem við hittumst nú ekki mjög oft í skólanum núna...hmmmm?